Siggi segir

Sunday, August 20, 2006

Erfitt að segja bara bless

Stundum lendir maður bara í slagtogi með röngu fólki. Þegar ég var ungur og óreyndur átti ég í skammlífu ástarsambandi við stelpu. Þetta samband gekk ekki upp og lauk því með eftirfarandi afleiðingum.

Þín angist vex og vex
þú ert dæmd til að þjást
Þó þú vitir allt um analsex
veistu ekkert um ást.

Þú greiðir gjald fyrir þína synd
þú skalt bara bíða.
Þú ert hörmuleg hryggðarmynd
sem kannt bara að ríða.

Ömurleg og einskisverð
með egóið þitt stóra
Þú ert sú eina sem ekki sérð
að þú ert bölvuð hóra.

Útlit þitt er asnalegt
og innrætið líka
með þér er ekkert skemmtilegt
djöfuls sóðapíka.

Ég fann þetta fallega ljóð í fórum mínum um daginn og datt í hug að skella því herna inn sjálfum mér og öðrum unnendum ljóðlistar til óblandinnar ánægju.

Aldrei bitur
Siggi

Tuesday, August 15, 2006

Með sódómsku yfirbragði

Mér finnst alltaf hálf hallærislegt þegar ,,upp kemur í þjóðfélaginu mikil umræða um samkynhneigð". Það vekur jafnvel hjá mér ofurlitla kátínu að nú á þessari miklu upplýsingaöld skuli menn enn vera að velta sér svona upp úr líferni annarra. Þegar styrjaldir geysa, ofbeldi er daglegt brauð meðal fólks (jafnvel gagnkynhneigðra) og margt fleira eru ákveðnir aðilar sem virðast halda að helst ógn sem að okkur steðjar sé fjölgun samkynhneigðra.
Eins og flestum ætti að vera kunnugt birtist nú á dögunum auglýsing í morgunblaðinu þar sem boðaðar voru leiðir til að losna úr viðjum samkynhneigðar. Skömmu síðar heyrði ég viðtal við einhvern guðfræðing þar sem hann þuldi upp allskyns tölfræði til stuðnings þess að slík meðferð bæri árangur. Bandarískar rannsóknir sýndu svo ekki væri um villst að hægt væri að ,,lækna" samkynhneigða. Næstum 30% árangur hefði náðst.
Hér er mín skýring á því. Nú er ég karlmaður. Segjum sem svo að allt mitt líf væri mér kennt að það væri rangt að vera karlmaður. Það væri fordæmt af samfélagi mínu og trúarbrögðum. Svo væri mér boðin meðferð eftir að allir væru búnir að vinna í því allt mitt líf að sannfæra mig um að eitthvað væri að mér. Líklega myndi ég fara í meðferðina með opnum hug og koma út dillandi mjöðmum og slúðrandi um vinkonur mínar...
Sjálfur hef ég ákveðna fordóma gagnvart heittrúuðum. Þó held ég að ekki sé rétt að bjóða þeim sem trúa statt og stöðugt á Guð og Jesú, einhverja meðferð. Jafnvel þó ég sé algerlega sannfærður um að trúarbrögð hafi kallað meiri hörmungar yfir heiminn en samkynhneigð.

Hýr en trúlaus
Siggi